Leiðbeiningar OECD umbaráttu gegn ólögmætusamráði í opinberuminnkaupum(2025‑uppfærsla) Þessar leiðbeiningar voru samþykktar og gerðar opinberar af Samkeppnisnefnd OECD (Competition Committee)þann 19/06/2025. Þetta skjal, sem og öll gögn og kort sem hér eru að finna, hafa ekki áhrif á stöðu eða fullveldi yfir neinu landsvæði,afmörkun landamæra og nafn landsvæðis, borgar eða svæða. Vinsamlegast vísið til þessa efnis sem:OECD (2026),Leiðbeiningar OECD um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum (2025-uppfærsla), OECDPublishing, Paris, https://doi.org/10.1787/4ff00a9a-is. ISBN 978-92-64-51653-3 (PDF)ISBN 978-92-64-97337-4 (HTML) Ljósmynd:Forsíða © shironosov/iStock by Getty Images Plus. Leiðréttingar á útgefnu efni Efnahags- og framfarastofnunarinnar er að finna á netinu á: https://www.oecd.org/en/publications/support/corrigenda.html.© OECD 2026 Attribution 4.0 International (CC BY 4.0)Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt Creative Commons Attribution 4.0 International leyfinu. Með því að nota þetta verk samþykkir þú að vera bundinn af skilmálum þessa leyfis(https://creativecommons.org/licenses/by/4.0/).Tilvísun– þú verður að vitna í verkið.Þýðingar– þú verður að vitna í upprunalega verkið, tilgreina breytingar á upprunalega verkinu og bæta við eftirfarandi texta:Ef einhver misræmi er á milli upprunalega verksins ogþýðingarinnar skal aðeins texti upprunalega verksins teljast gildur.Aðlögun– þú verður að vitna í upprunalega verkið og bæta við eftirfarandi texta:Þetta er aðlögun að upprunalegu verki eftir OECD. Skoðanir sem koma fram og röksemdir semnotaðar eru í þessari aðlögun ættu ekki að vera birtar sem opinberar skoðanir OECD eða aðildarríkja þess.Efni frá þriðja aðila– leyfið gildir ekki um efni frá þriðja aðila í verkinu. Ef þú notar slíkt efni berð þú ábyrgð á að fá leyfi frá þriðja aðila og að standa straum af kröfum um brot áhöfundarrétti.Þú mátt ekki nota merki OECD, sjónræna auðkenni eða forsíðumynd án skýrs leyfis eða gefa í skyn að OECD styðji notkun þína á verkinu.Öllum ágreiningi sem kann að rísa vegna þessa leyfis skal útkljáður með gerðardómi í samræmi við reglur fasta gerðardómsins (PCA) frá 2012. Sæti gerðardómsins skal vera í París(Frakklandi). Fjöldi gerðardómara skal vera einn. Formáli Opinberar og einkareknar stofnanir reiða sig oft á útboð til að kaupa það sem þær þurfa. Þegar bjóðendurundirbúa tilboð sínsjálfstættog afheiðarleikatryggja niðurstöður útboðs hagkvæmni.ÓlögmættSamráð íútboðum(e. Bid-rigging)á sér stað þegar fyrirtæki koma sér saman um að hækka verð eðaminnkagæðitilboða sinna. Samráð í útboðum er ólöglegt samkvæmt samkeppnislögum í öllum OECD-ríkjum. Í mörgumþeirra er það refsiverð háttsemisamkvæmthegningarlögum.Samráðer sérstaklega skaðlegt í opinberuminnkaupum þar sem það hefur áhrif á opinbera þjónustu, sóar opinberu fé og dregur úr trausti áhinuopinbera. Árið(2023[1]),endurskoðaði OECD-ráðið á ráðherrastigi tilmæli um baráttu gegnólögmætusamráði íopinberum innkaupum[OECD-LEGAL-0396].Tilmælin miða að því að stuðla að virkri samkeppni íopinberum innkaupum, draga úr hættu á samráði, auðvelda uppgötvun samráðs og styðja við framkvæmdsamkeppnislaga. Í samræmi við fyrirmæli ráðsins endurskoðaðisamkeppnisnefndOECDleiðbeiningar um baráttu gegnsamráði í opinberum innkaupum árið 2025. Við endurskoðunina var byggt á umræðumí hringborðumOECD um samráð, framkvæmdsamráðsmála ogmálsvaraverkefnumOECDinnan og utanOECD-landa,auk reynslu skrifstofuOECDaf verkefnumsem varðabaráttu gegn samráði í opinberum innkaupum. Leiðbeiningarnar miða að því að styðja innkaupa-og samkeppnisyfirvöld við að koma í veg fyrir og greinasamráð í útboðum. Þær innihalda almennar enekki tæmandi meginreglur sem hægt er að aðlaga að hverjuinnkaupaferli.Þærinnihaldaumfjöllun um mismunandiformólögmætssamráðs ogkerfi sem aðilar aðsamráði nýta sér til uppgjörsá milliþátttakenda(þóknunar, refsingar eða bóta). Leiðbeiningarnar útskýratengsl samráðs við aðra ólögmæta háttsemi og hvaða einkenni framboðs og eftirspurnar geta auðveldaðsamráð. Meginefni þeirra erutveirgátlistar: •Gátlisti fyrir hönnun útboðs, sem lýsir aðgerðum til að skipuleggja og framkvæma innkaupþannig að dregið sé úr hættu á samráði•Gátlisti fyrir greiningu samráðs, sem setur fram viðvörunarmerki(rauð flögg)til að auðveldaþaðað upplýsa um ólögmætt samráð. Leiðbeiningarnar voru unnar af vinnuhópi 3 um samvinnu ogfullnustu. Þær voru síðan ræddar, samþykktarog gerðar opinberar af Samkeppnisnefnd OECD þann 19. júní 2025. Leiðbeiningarnar voru unnar af Despinu PachnouásamtEduardo Mangada Real de Asúa og með framlagifráOri Schwartz og Antonio Capobianco frá samkeppnissviði OECD. Við vinnu við leiðbeiningarnar varjafnframt haft samráð við nefnd OECD um opinbera stjórnsýslu, vinnuhóp sérfræðinga í opinberuminnkaupum og starfsfólk innviða-og innkaupasviðs OECD. Skjaliðvar undirbúið til útgáfu af EricuAgostinho. Efnisyfirlit 3 Formáli 6 Samantekt 1 Hvað er samráð í útboðum?9 1.1. Algengar tegundir samráðs við opinber innkaup101.2.